Hoppa í aðalefni
Datatech LogoDatatech Logo
Gagnabjörgun
Umsagnir
Um okkur
571-9300Stofna beiðni
Datatech LogoDatatech Logo

Sérfræðingar í gagnabjörgun síðan 2012. Við björgum gögnum af öllum helstu gagnageymslum.

Þjónustur

  • Harðir diskar
  • SSD diskar
  • RAID kerfi
  • Minniskort
  • Snjallsímar
  • USB lyklar
  • Afritunarþjónusta

Fyrirtækið

  • Um okkur
  • Blogg
  • Hafa samband
  • Sækja um að gerast samstarfsaðili

Hafa samband

  • Suðurlandsbraut 54
    108 Reykjavík
  • 571-9300Símatími: virka daga 8:00 - 16:00
  • hjalp@datatech.is
  • Móttaka hjá PixlarVirka daga: 10:00 - 18:00
    Laugardaga: 11:00 - 15:00

© 2012-2026 Datatech ehf. Allur réttur áskilinn | kt.420115-0240 | VSK númer: 119183

PersónuverndarstefnaÖryggisstefnaSkilmálarAðgengisstefna
Vefhönnun:
Hleður / Loading
  1. Forsíða
  2. Afritunarþjónusta

Afritun fyrir fyrirtæki og einstaklinga

Gögn liggja á ólíkum stöðum og þurfa ólíka afritun. Við bjóðum þrjár leiðir. Hér sérðu hver þeirra á við þig.

Við höfum bjargað gögnum af biluðum diskum síðan 2012. Afritun er til þess að þurfa ekki á okkur að halda.

Fá ráðgjöfHringdu í 571-9300
Hvað á við?

Hvar liggja gögnin sem mega ekki tapast?

Veldu það sem lýsir stöðunni best. Þú getur líka hringt og við finnum út úr því saman.

Skýjadrif

Einstaklingar og lítil fyrirtæki

Skýjadrif er skýjageymsla Datatech: skrár, myndir og myndbönd á einum stað. Þú hleður upp í vafranum, gögnin eru dulkóðuð og hýst innan EES.

  • 14 daga frí prufa í upphafi
  • Tveggja þátta auðkenning skylda
  • Íslenskt viðmót og íslensk þjónusta
Skoða Skýjadrif

Afritun af skýjaþjónustum

Fyrirtæki sem nota Microsoft 365 eða Google Workspace

Við afritum tölvupóst, skrár og samstarfssvæði sjálfkrafa. Skýjaþjónusturnar sjálfar verja ekki gögnin gegn mistökum eða árásum.

  • Microsoft 365, Google Workspace og Salesforce
  • Endurheimt frá völdum tímapunkti
  • Engin takmörk á varðveislutíma
Skoða SaaS-afritun

Afritun fyrir fyrirtæki

Netþjónar, vinnustöðvar og staðbundin kerfi

Afritun í skýið, á staðbundinn miðil eða hvort tveggja. Við setjum hana upp og vöktum hana.

  • Ský, staðbundið eða hvort tveggja
  • Vöktun með viðvörunum
  • Uppsetning og ráðgjöf á staðnum
Fá tilboð
Ef gögnin eru þegar töpuð

Þá er þetta gagnabjörgun, ekki afritun

Diskurinn ræsist ekki, síminn fór í sjóinn eða skrá var eytt óvart. Það er annað verk og við sinnum því líka.

Skoða gagnabjörgun
Af hverju Datatech

Sama fólkið bjargar gögnunum þegar allt annað bregst

Við höfum opnað bilaða diska síðan 2012. Það mótar hvernig við setjum upp afritun: við vitum hvað fer úrskeiðis og hvað kostar að laga það eftir á.

Gögnin innan EES

Við hýsum gögnin í Evrópu og flytjum þau ekki út fyrir svæðið.

Dulkóðað alla leið

AES-256 í flutningi og geymslu, sami staðall og bankar nota.

Þjónusta á íslensku

Þú talar við fólk sem hannaði kerfið og þekkir það í bak og fyrir.

Hafa samband

Ertu ekki viss um hvað hentar?

Sendu okkur línu. Við förum yfir hvað þarf að verja og hvað það kostar.

Hringdu í 571-9300