Við björgum gögnum af biluðum eða dauðum SD, SDHC, SDXC, Micro SD, Micro SDHC, xD, og compact flash minniskortum. Einnig eftir að búið er að formata kortið óvart eða eyða gögnunum.
Eina fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig í gagnabjörgun, starfandi síðan 2012.

Standard SD, SDHC, SDXC
Micro SD, SDHC, SDXC
CF Type I og II
Fagleg myndbandsupptaka
Háhraða fagmyndavélar
Nýjasta kynslóð

Minniskort eru oft notuð til að geyma ómetanlegar minningar og mikilvæg gögn. Við höfum hjálpað mörgum ljósmyndurum, kvikmyndagerðarfólki og einstaklingum að bjarga dýrmætum myndum og myndböndum.
Ljósmyndun
Brúðkaupsljósmyndir, atburðir, portrettmyndir
Myndbandsupptökur
Kvikmyndagerð, viðburðir, YouTube
Drónaupptökur
DJI, Mavic og aðrir drónar
Ef þú hefur glatað myndum eða gögnunum af minniskortinu er afar mikilvægt að hætta strax að nota kortið. Ef þú tekur fleiri myndir eða skrifar ný gögn á kortið geta þau yfirskrifað gögnin sem þú vilt bjarga.
Hafðu strax samband við okkur til að fá rétta ráðgjöf og auka líkurnar á fullri gagnabjörgun.
Datatech er eina fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig í gagnabjörgun og hefur verið starfandi í faginu síðan árið 2012. Við búum yfir sérhæfðum tæknibúnaði og þekkingu til að klára málin hérlendis.
Sérfræðingar okkar hafa yfir 22 ára starfsreynslu í úrlausn flókinna gagnabjörgunarverkefna og hafa hlotið þjálfun og vottanir frá alþjóðlegum leiðtogum í gagnabjörgun eins og ACE lab.
Við notum fagaðferðir sem tryggja að upprunalegu gögnin séu aldrei í hættu á meðan gagnabjörgun fer fram.

Við skoðum kortið og gerum bilanagreiningu. Þú færð verðmat og upplýsingar um líkur á árangri áður en við byrjum. Ef þú samþykkir tilboðið byrjum við strax á gagnabjörguninni.
Verð fer eftir tegund bilunar og hversu mikið þarf að gera. Við gefum alltaf verðmat eftir skoðun. Fast tilboð er gefið eftir bilanagreiningu og þú veist nákvæmlega hvað þú ert að skuldbinda þig til.
Gögnin eru afhent á nýjum USB diski eða þú getur sótt þau rafrænt. Við sendum þér lista yfir öll björguð gögn áður en þú sækir þau.
Tíminn fer eftir hversu flókin bilunin er. Einföld verkefni taka oft 1-3 virka daga, flóknari verkefni geta tekið lengri tíma.
Við erum stolt af framúrskarandi þjónustu og árangri
Ég fékk fyrirmyndarþjónustu. Persónuleg tölvugögn mín voru illu heilli að mestu leyti vistuð á einum diski, sem varð allt í einu ólesanlegur. Eftir bilanagreiningu var mér bent á Datatech. Þar var gögnunum bjargað 100%. Öll samskipti voru eins og best verður á kosið.
Bjarni Frímann Karlsson
Apple verkstæði gat ekkert gert fyrir mig og bentu mér á Datatech en lofuðu ekki árangri. Ég var ekki bjartsýnn en ákvað að prófa. Þetta tók tíma en tókst og það var staðið við kostnaðaráætlunina. Ég get þeim bestu mögulegu meðmæli.
Gunnar Árnason, Hljóðmaður
Ég fékk mjög góða þjónustu. Móttaka verkefna er einföld og góð. Þjónustan er unnin hratt og örugglega. Í mínu tilfelli var um að ræða erfitt verkefni en ég fékk öll gögnin mín til baka.
Þorgeir Arnórsson
Við bjóðum einnig upp á gagnabjörgun af öðrum tegundum geymslumiðla

Stofnaðu þjónustubeiðni
Fylltu út eyðublaðið á vefsíðunni okkar
Komdu með minniskortið til Pixlar
Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík
Fáðu bilanagreiningu og verðmat
Þú samþykkir eða hafnar tilboðinu
Pixlar – Móttökustaður
Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík
Virka daga: 10:00 – 18:00
Laugardaga: 11:00 – 15:00
Einnig er hægt að senda minniskortið í pósti. Hafðu samband til að fá leiðbeiningar.
Stofnaðu þjónustubeiðni og komdu búnaðinum til okkar. Við erum sérfræðingar í gagnabjörgun og höfum bjargað ómetanlegum myndum og myndböndum fyrir þúsundir viðskiptavina.