Við björgum gögnum af öllum gerðum af USB minniskubbum, hvort sem gögnum hefur verið eytt, kubburinn dauður eða kemur ekki fram í stýrikerfi.
Eina fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig í gagnabjörgun, starfandi síðan 2012.

Eldri minnislyklar
Háhraða minnislyklar
Nýjasta kynslóð
Öryggislyklar

Ef USB tengillinn er brotinn er oft hægt að bjarga gögnunum. Við getum tengst beint við PCB plötuna og lesið gögnin af flash minninu. Þetta krefst sérhæfðs búnaðar og reynslu sem við höfum.
Örgjörvaviðgerðir
Við getum gert viðgerðir á PCB plötum og tengingum.
NAND lestur
Við getum lesið beint af NAND flash kubbum ef þörf krefur.
Ekki reyna sjálfur
Rangar viðgerðir geta valdið varanlegum skemmdum á gögnunum.
Ef USB lykillinn þinn þekkist ekki eða gögn hafa glatast, hættu strax að nota hann. Ekki reyna að formatta hann eða keyra gagnabjörgunarhugbúnað sjálfur þar sem það getur gert málin verri.
Datatech er eina fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig í gagnabjörgun og hefur verið starfandi í faginu síðan 2012 og býr yfir sérhæfðum tæknibúnaði og þekkingu til að klára málin hérlendis.
Datatech er eina fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig í gagnabjörgun og hefur verið starfandi í faginu síðan árið 2012. Við búum yfir sérhæfðum tæknibúnaði og þekkingu til að klára málin hérlendis.
Sérfræðingar okkar hafa yfir 22 ára starfsreynslu í úrlausn flókinna gagnabjörgunarverkefna og hafa hlotið þjálfun og vottanir frá alþjóðlegum leiðtogum í gagnabjörgun eins og ACE lab.
Varast skal að fara með USB lykla í gagnabjörgun hjá venjulegum tölvuverkstæðum þar sem engin sérþekking er til staðar og rangar aðgerðir geta valdið varanlegum skemmdum.

Við skoðum kubbinn og gerum bilanagreiningu. Þú færð verðmat og mat á líkum á árangri áður en við byrjum. Ef þú samþykkir tilboðið byrjum við strax á gagnabjörguninni.
Verð fer eftir tegund bilunar og hversu flókin hún er. Við gefum alltaf verðmat eftir skoðun. Fast tilboð er gefið eftir bilanagreiningu og þú veist nákvæmlega hvað þú ert að skuldbinda þig til.
Gögnin eru afhent á nýjum USB diski eða send rafrænt ef um minna gagnamagn er að ræða. Við sendum þér lista yfir öll björguð gögn áður en þú sækir þau.
Tíminn fer eftir hversu flókin bilunin er. Einföld verkefni taka oft 1-3 virka daga, flóknari verkefni geta tekið lengri tíma.
Við erum stolt af framúrskarandi þjónustu og árangri
Virkilega hröð og professional þjónusta. Bjargaði gögnunum mínum 100% og var alltaf til staðar að svara hvaða spurningum sem er. Mæli með.
Helga Lilja Magnúsdóttir
Apple verkstæði gat ekkert gert fyrir mig og bentu mér á Datatech en lofuðu ekki árangri. Ég var ekki bjartsýnn en ákvað að prófa. Þetta tók tíma en tókst og það var staðið við kostnaðaráætlunina. Ég get þeim bestu mögulegu meðmæli.
Gunnar Árnason, Hljóðmaður
Stutt og laggott.. Kom með ónýtan disk en eftir mikið puð hjá Datatech var hægt að bjarga öllu úr disknum og setja yfir í þennan 'itty bitty' disk frá þeim. Draumur og allir ánægðir að geta loks séð allt aftur.
Leifur Reynir Björnsson
Við bjóðum einnig upp á gagnabjörgun af öðrum tegundum geymslumiðla

Stofnaðu þjónustubeiðni
Fylltu út eyðublaðið á vefsíðunni okkar
Komdu með USB lykilinn til Pixlar
Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík
Fáðu bilanagreiningu og verðmat
Þú samþykkir eða hafnar tilboðinu
Pixlar – Móttökustaður
Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík
Virka daga: 10:00 – 18:00
Laugardaga: 11:00 – 15:00
Einnig er hægt að senda USB lykilinn í pósti. Hafðu samband til að fá leiðbeiningar.
Stofnaðu þjónustubeiðni og komdu búnaðinum til okkar, þó þér hafi verið sagt annars staðar að ekkert væri hægt að gera til að bjarga gögnunum þínum. Við erum sérfræðingar í gagnabjörgun og höfum bjargað gögnum af þúsundum USB lykla.